MCFC Íslandmancity.is

Pistlar / Gamalt

Sunnudagurinn 13. maí 2012

Hallur
13. maí 20124 mín lestur

⏳Úr gamla safninu. Fjallar um 13. maí 2012 — 93:20. Sjá á tímalínunni →

Sunnudagur 13. maí, Manchester.

Kl. 07:30: Heiðskír dagur í Manchester, hef daginn með göngutúr um miðbæinn með Hallgrími Kúld.
Kl. 11:00: Förum út á völl, Ethihad og sækjum miðana. Tómas Hallgrímsson með allt á hreinu í þeim efnum, heldur fast utan um miðana. Allt í kringum okkur menn að biðja um miða.
Kl. 12:00: Haldið út á pöbbinn skammt frá vellinum. Allt stappað, og inn af barnum er stór salur. Þar er sungið og trallað: Blue Moon, you saw me standing alone, without a dream in my heart, without a love of my own. Stemmingin ólýsanleg, áreiðanlega á annað þúsund manns inn á pöbbnum, fyrir utan langar raðir af fólki sem bíður þess að komast inn.
Kl. 01:00: Við erum tíu sem förum í svokallað hospitality. Gamla kempan Gary Owen er gestgjafi, leikur á alls oddi. Maturinn aldeilis frábær.
15:00: Blásið til leiks. Leikurinn fer hægt af stað, City nánast alltaf með boltann en lítið um færi. City ekki sjálfu sér líkt en nokkrum mínútum fyrir hálfleik skorar Pablo Zabaletta mark. Fögnuðurinn ólýsanlegur á Ethihad. Það er eins og leikmönnum finnist sigur í höfn, en Yaya Toure hefur meiðst og de Jong kemur inn.
16:05: Blásið til síðari hálfleiks. Aguera nálægt að skora en það líða ekki margar mínútur þar til slysið á sér stað: Á meðan menn eru menn getur allt gerst, eitthvað crazy, hafði Ferguson stjóri United sagt. Og það er einmitt gerist. Jolean Lescott misreiknar boltann og skallar fyrir fæturna á Cisse. Joe Hart á ekki möguleika að verja fast skot hans. Þögn slær stuðningsmenn City á Etihad en áhagendur QPR leika á alls oddi.
16:15: Línuvörðurinn veifar ótt og títt. Joey Barton, sem City kom til manns, hefur veitt Carlos Teves olnbogaskot. Dómarinn veifar rauðu, Barton sér rautt og sparkar Aguera niður. Allt vitlaust. Nú hlýtur þetta að koma, segjum við. City sækir og sækir, QPR tjaldar við teiginn en samt gerist skelfingin. QPR á skyndisókn og skorar. Stuðningsmenn QPR tryllast, en heyra má saumnál detta meðal stuðningsmanna City.
City sækir og sækir en liðið leikur illa, afar illa. QPR tjaldar við teiginn, þeir reyna ekki sækja hvað þá halda bolta. City með boltann yfir 80%. Dzeko kemur inn fyrir Teves, og svo Balotelli fyrir Barry.
16:50: Það eru liðnar 90 mínútur og enn er City undir. Fólk grætur, margir yfirgefa leikvanginn með tár í augu. Draumurinn um fyrsta titilinn í 44 ár er að snúast upp í martröð. Ég, sem hóf að halda með City 1967, er a spá í að labba inn í salinn en ákveð að sitja sem fastast, minnugur þess sem gerðist þegar City var 0-3 undir í hálfleik gegn Tottenham í Bikarnum 2004 og Joey Barton sendur í sturtu fyrir að rífa kjaft. Ég læt ekki bjóða með þetta, sagði ég þá og fór. City vann leikinn 4-3 í dramatískasta bikarleik allra tíma. Ég sé ennþá eftir að hafa labbað út. Sit sem fastast og gref andlitið í höndum mínum. Einhver hrópar: Sunderland er búið að jafna gegn United. En það skiptir engu. Við erum að tapa, það er tilkynnt að fimm mínútum verði bætt við leiktímann. 
City vinnur enn eina hornspyrnuna. David Silva tekur hornið, Dzeko stekkur hæst og skallar í netið. Getur verið að Sunderland hafi jafnað gegn United, segir fólk. Aguero hleypur með boltann að miðju, en leikmenn QPR fara sér hægt, afar hægt. Það er von, það er von. Áhagendur City taka við sér, Etihad nötrar. En QPR verst vel, og þeir sparka boltanum eins lagt fram og þeir geta. City fer í síðustu sókn, þeir eru komnir á fimmtu mínútu. de Jong ber boltann upp og gefur á Aguero sem er 15-20 metra frá teignum. Hann gefur inn á Balotelli við vítateiginn þar sem Ítalinn er að kljást við varnarmann QPR. Balotelli kastar sér á boltann og nær að ýta honum inn í teiginn þar sem Aguero er kominn. Argentínumaðurinn leikur á varnarmann, og er skyndilega kominn að markteig og í dauðafæri. Aguero lætur vaða, og skyndilega er boltinn í netinu. Það tryllist allt, það tryllist allt, fólk faðmast og hlær, víða eru tár í augum. Draumurinn hefur ræst. City eru meistarar. Áratuga smán og niðurlæging er að baki, gleðin fölskvalaus, taumlaus. Orð fá því ekki lýst.
Svo syngur fólkið: This is how it feels to be City, this is how it feels to be small. 

— Hallur