MCFC Íslandmancity.is
MCFC Ísland

Pistlar / Minningar

City uns yfir lýkur

Magnús Ingvason · Formaður stuðningsmannaklúbbsins á Íslandi
u.þ.b. október 20085 mín lestur

⏳Úr gamla safninu. Fjallar um Um 1970 — Fossvogsárin. Sjá á tímalínunni →

Í kringum 1970 var holóttur moldarvöllur fyrir neðan Búland, vestarlega í Fossvoginum heimili fjölmargra barna í hverfinu. Einkum voru þrír 10 og 11 ára strákar öllum stundum á vellinum. Þessir þrír strákar voru Lúlli Birgis, a.k.a. Francis Lee, Dagur Jónasar, a.k.a. Colin Bell og undirritaður, a.k.a. Rodney Marsh; að okkar áliti þrír bestu leikmenn Manchester City á þessum tíma. Við þrír sýndum oft ótrúlega takta á holóttum moldarvellinum og við hvert mark sem var skorað brutust út ótrúleg fagnaðarlæti. Og stundum voru tilþrifin sýnd aftur – hægt. Alveg eins og í sjónvarpinu. Og City vann alla leiki á þessum velli. Annað var ekki til umræðu.

Við höfðum eins og margir á þessum árum byrjað að fylgjast af miklum áhuga með ensku knattspyrnunni í íslenska sjónvarpinu. Horft var á vikugamla leiki í svarthvítum sjónvörpum á laugardögum. Alltaf var vitað hver úrslitin urðu og hverjir skoruðu (ef það var þá skorað). Í minningunni finnst mér þó eins og flestir leikir hafi endað 0-0 og leikaðferðin kick and run (eða kick and hope (eins og hún er stundum nefnd)) hafi verið vinsælust. Það þýddi líklega lítið að bjóða upp á þetta í dag, þ.e.a.s. vikugamla leiki, svart hvít sjónvörp og þrautleiðinlega leikaðferð.

Ég er ekki klár af hverju við kusum á þessum tíma að halda með Manchester City. Líklega hefur Englandsmeistaratitill 1968 og Evrópubikarinn 1969 haft sitt að segja. Kannski hafði einhver okkar fengið City – trefil, eða húfu eða fána? En eftir að liðið hafði verið valið, þá völdu menn þá leikmenn í liðinu sem þeir „voru” í leikjunum í Fossvoginum.

Ég valdi að vera Rodney Marsh eins og fyrr segir, en hann var mikill markaskorari City á þessum árum. Ferill hans var þó ívið styttri en ætla mætti, en hann hafði, eins og önnur síðhærð stjarna í borginni, George Best, meiri áhuga á konum, skemmtunum og víni. Rodney Marsh þótti dálítið ólíkindatól og litríkur karakter. Frægt var t.a.m. þegar hann eitt skipti tók vítaspyrnu. Hann tók tilhlaup allt aftur að miðlínu, hljóp síðan alla leið, hægði á sér rétt við boltann, eins og hann væri að leka niður og skaut síðan leiftursnöggt í hornið; mark. Ég er ekki viss um að þetta sé leyfilegt í dag. Svo fagnaði hann mörkum sínum með stæl. Hann var afar vinsæll og ég þóttist himin höndum tekið að „vera hann” á fótboltavellinum.

Á þessum árum átti hver gata í Fossvogi sitt eigið lið. Í Búlandinu, þar sem við þrír bjuggum, var það Fálkinn. Fálkinn var mjög öflugt lið og ef ég man rétt var vinningshlutfallið einhver þrjú eða fjögur ár 65-4; já við vorum nánast ósigrandi. Liðið bjó að því að hafa mikinn fjölda stráka sem bjuggu í götunni; þ.e.a.s. mikla breidd (eins og það kallast). Atvik höguðu því síðan þannig að til þess að komast í liðið þurftu menn að halda með Manchester City, eða öllu heldur að stuðningsmenn þess liðs fengu að spila miklu meira en aðrir. Ein undantekning var reyndar á þessu þegar frekar öflugur senter, Þórir Hallgríms fékk að spila töluvert, en hann hélt með Liverpool. Það vóg þó þungt á móti að tvíburabróðir hans, Tómas var öflugur varnarmaður og einlægur City – maður og þ.a.l. fastamaður í liðinu. Síðan skipti einnig máli hvernig herbergi manna litu út. Á þessum árum var vinsælt (eflaust eins og nú) að betrekkja veggi herbergja með plakötum, einkum úr fótboltablaðinu Shoot! Maður var með tvær eða þrjár liðsmyndir af City uppi á vegg og svo fjölda einstaklingsmynda. Maður sofnaði og vaknaði því með þessu liði og leikmönnum þess. Enn þann dag í dag treysti ég mér til að þylja upp liðið frá þessum tíma, allt frá markverði til sentera og jafnvel varamennina líka. Ég man hins vegar ekki símanúmer dætra minna (enda með þær í minni símans og í hraðvali (mér til afsökunar)).

Í dag er nokkuð stór hluti Manchester City-stuðningsmannaklúbbsins á Íslandi úr Búlandinu. Kannski ekki stór hluti, enda um „gríðarlega fjöldahreyfingu” að ræða, en Búlandsarmurinn er traustur.

Ég sá Manchester City spila fyrst þegar ég fór í keppnisferð með Fram tilGlasgow í kringum 1974. Þar tók liðið þátt í fjögurra liða móti og hefur eflaust unnið það! Ég man það reyndar ekki. Næst sá ég svo liðið 2003 þegar það lék síðustu leiktíðina á Maine Road og svo strax árið eftir, á fyrstu leiktíðinni á City of Manchester Stadium (sjá mynd). Að sjálfsögðu vann City báða leikina; gegn Bolton og Birmingham.

Ég er jafn mikill stuðningsmaður City í dag og ég var árið 1970, kannski örlítið meiri nú. Í mínum huga hefur liðið alltaf verið það besta sem völ er á, jafnvel þegar liðið var í ensku annari deildinni. Það var nú bara eiginlega bara smart og jók víðsýni manna. Maður þarf að kynnast hlutunum frá öllum hliðum og maður nýtur góðu dagana betur þegar maður hefur upplifað þá slæmu líka. City er lið með reynslu!

Það er skemmst frá því að segja að undanfarin ár hefur gengi liðsins verið upp og ofan, oftast ofan. Nú virðast hins vegar bjartari tímar framundan. Það er engin launung að peningar ráða miklu varðandi gengi liða og nú loksins höfum við töluvert af þeim. Til þess að vera á meðal þeirra bestu, eins og Liverpool, Arsenal og Chelsea (það er stundum gaman að leika sér að eldinum) þá þarf að eiga peninga til að kaupa leikmenn í heimsklassa. Nokkrir slíkir hafa komið til City á þessari leiktíð til viðbótar þeim sem fyrir voru. Vonandi skilar það sér í bættum árangri.

Að lokum verður maður að minnast aðeins á hitt liðið í borginni, Oldham Athletic! Ég meina reyndar Manchester United. Leikirnir við United eru náttúrulega þeir stærstu sem völ er á. Sagt er að stuðningsmönnum City á Englandi sé sama um hvort liðið falli um deild eða ekki, svo framarlega sem það vinni United. Það sé það eina sem skipti máli. Það er sama hjá mér; það skiptir gríðarlega miklu máli að vinna United og sem betur fer tekst það yfirleitt alltaf!!!

Ég hef fulla trú á að tími Manchester City sé kominn og ef menn ráða aðeins í orðið City, þá sjá menn hæglega að það þýðir Championship InTwo Years! (nei, nei, ekki twenty years). Ég enda svo þessa grein á einkunnarorðum City-manna: „City till I die”

— Magnús Ingvason, Formaður stuðningsmannaklúbbsins á Íslandi